Búnaðarbankinn er lokaður föstudaginn 14. febrúar 2025
Opnunartími:
Mánudagar kl. 13:30-15:00 Föstudagar kl. 9:00-11:00 og 13:30-15:00
Mixtúra Stofur K-101 og K-104, Menntavísindasvið Háskóla Íslands Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík Sími: 411-7080
Skoðaðu, pantaðu og prófaðu skemmtileg náms- og kennslugögn fyrir skóla- og frístundastarf
Búnaðarbankinn býður starfsfólki skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar upp á tveggja vikna útlán, án endurgjalds, á fjölbreyttum náms- og kennslugögnum. Hugmyndafræði Búnaðarbankans er að gera starfsfólki skóla- og frístundastarfs kleift að prófa ýmsar nýjungar í starfi án skuldbindinga. Starfsstaðirnir geta þannig prufukeyrt gögn og efni og valið í kjölfarið hvort þeim hugnist að fjárfesta í slíku í framtíðinni. Flest allt í Búnaðarbankanum er hægt að fá að láni til að prófa en sumir hlutir eru einungis hugsaðir til kynningar. Hægt er að hafa samband við okkur í Mixtúru til að skoða þá hluti betur ef áhugi er á því.
Starfsfólki á öllum stigum skólastarfs sem og í frístundastarfi SFS stendur til boða að skrá sig inn, panta þau gögn sem þeim líst á og sækja svo í Búnaðarbankann.
Mikilvægt er að nota netfang frá Reykjavíkurborg við skráningu og setja nafn starfsstaðar í stað heimilisfangs. Mikilvægt er að notendur fari vel með og yfirfari innhald kassa áður en þeim er skilað til að tryggja að allt skili sér til baka.