Skoðaðu, pantaðu og prófaðu
Búnaðarbankinn lánar starfsfólki skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar fjölbreytt náms- og kennslugögn án endurgjalds í allt að þrjár vikur.
Búnaðarbankinn er einnig í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og kennarar og nemendur hafa einnig aðgang.
Hér getur þú prófað búnað og nýjar leiðir í starfi, ekki síst stafræna tækni, áður en starfsstaðurinn ákveður hvort hann vilji fjárfesta í eigin búnaði.
- Skoðaðu – finndu búnað eða kennslugögn sem henta verkefninu.
- Pantaðu – skráðu þig inn og taktu frá lausan búnað á vefnum.
- Sæktu – sæktu pöntunina í Búnaðarbankann á umsömdum tíma.
- Skilaðu – skilaðu búnaðinum á réttum tíma og yfirfarðu innihald kassa svo allt skili sér til baka.
Þegar með aðgang? Farðu í innskráningu.
Dæmi um búnað
Sex hlutir úr Búnaðarbankanum, valdir af handahófi.
Hver getur fengið lánað?
Starfsfólk á öllum stigum skólastarfs og í frístundastarfi SFS ásamt samstarfsaðilum í HÍ geta skráð sig, pantað og fengið búnað lánaðan.
Notaðu vinnunetfang frá Reykjavíkurborg eða Háskóla Íslands við skráningu, ekki persónulegt netfang. Skráðu nafn starfsstaðar í stað heimilisfangs.
Opnunartími og staðsetning
Opnunartími
- Mánudagar
- 13:00–16:00
- Föstudagar
- 09:00–13:00
Á opnunartíma er starfsmaður á staðnum til að taka saman og afgreiða pantanir og veita ráðgjöf. Ef opnunartíminn hentar alls ekki skaltu hafa samband og við finnum annan tíma.
Staðsetning
Saga – Menntavísindasvið Háskóla ÍslandsHagatorg 1
3. hæð, stofa S-324
107 Reykjavík
mixtura@reykjavik.is
Prófum áður en við fjárfestum
Búnaðarbankinn gerir starfsfólki kleift að prófa nýjungar án skuldbindinga og styður þannig við stafræna vegferð skóla- og frístundastarfs.
Sameiginleg nýting búnaðar byggir á deilihagkerfi og hringrásarhugsun: fleiri geta prófað gögnin og starfsstaðir geta metið hvað nýtist í starfi.
Flest í Búnaðarbankanum er hægt að fá lánað til að prófa. Sumir hlutir eru aðeins til kynningar; hafðu samband við Mixtúru ef þú vilt skoða þá betur.
Hlökkum til að sjá ykkur!