ISJ 0.00
í 21 daga
Staðsetning:
Búnaðarbanki SFS
Ástand: A - As new
Framleiðandi: TTS Group
Númer: BUN0858
Easi-Scope 2 er stafræn lófasmásjá sem gerir nemendum kleift að skoða smáatriði í umhverfinu á einfaldan og skemmtilegan hátt. Hægt er að rannsaka plöntur, skordýr, steina, textíl, pappír og ýmis önnur fyrirbæri bæði inni í kennslustofu og úti í náttúrunni.
Myndin birtist beint á Chromebook, Android-tæki eða tölvu, sem gerir auðvelt að vinna saman, ræða athuganir og skrá niðurstöður. Smásjáin hentar vel í náttúrufræði, upplýsinga- og tæknimennt, list- og verkgreinar og fjölbreytt rannsóknarverkefni.
Hentar vel fyrir:
* Rannsóknir á náttúru og umhverfi
* Vettvangsferðir og útikennslu
* Vísindaverkefni og skráningu athugana
* Skapandi verkefni þar sem skoðuð eru mynstur, áferð og smáatriði
Athugið: Til að nota smásjána með Chromebook eða Android-tæki þarf að setja upp Xploview appið. Appið er aðgengilegt í Google Play Store og er samþykkt lausn fyrir Chromebook. Xploview appið er ekki lengur í boði í Apple App Store og því er ekki hægt að nota smásjána með iPad eða iPhone í gegnum appið.
Aldur: 5–11 ára
Námsgreinar: Náttúrufræði, upplýsinga- og tæknimennt og samþætt verkefnavinna.
Skráðu þig inn til að panta eða fá að láni