Hætta við Panta / fá að láni:

Karaoke hátalari með hljóðnema og ljósi

ISJ 0.00 í 21 daga

Í boði
Staðsetning: Búnaðarbanki SFS
Ástand: A - As new
Framleiðandi: Lenco BTC-055
Númer: BUN0999
Lenco BTC-055 er færanlegur Bluetooth hátalari með hljóðnema og litljósum sem hentar vel í skapandi verkefni, kynningar og leik í skólastarfi. Tækið gerir nemendum kleift að syngja, tala eða flytja efni í gegnum hljóðkerfi og skapa skemmtilega stemningu með innbyggðum ljósáhrifum. Hægt er að spila tónlist beint úr síma, spjaldtölvu eða tölvu í gegnum Bluetooth eða með USB, SD-korti eða AUX tengingu. 

Hátalarinn er lítill og flytjanlegur með innbyggðri rafhlöðu og allt að um 10 metra Bluetooth tengingu, sem gerir hann hentugan fyrir kennslustofur, viðburði eða hópavinnu. 

App / hugbúnaður:
Ekki þarf sérstakt app. Hátalarinn tengist einfaldlega við síma, spjaldtölvu eða tölvu með Bluetooth og hægt er að spila tónlist eða hljóð úr hvaða appi sem er, t.d. YouTube, Spotify eða GarageBand.


Hvernig má nota í skólastarfi
• Söguleikhús og frásögn – nemendur segja sögur eða lesa texta með hljóðnema.
• Tungumálakennsla – æfa framburð, flytja ljóð eða halda stuttar kynningar.
• Tónlist og söngur – karaoke, söngverkefni eða tónlistarflutningur.
• Viðburðir og kynningar – nemendur kynna verkefni fyrir hópnum.
• Skapandi verkefni – t.d. útvarpsþættir, leikrit eða „talandi“ uppsetningar í sýningum.

Helstu eiginleikar
• Bluetooth hátalari (Bluetooth 5.0)
• 8 W hátalari
• Hljóðnemi með stillanlegu hljóðstyrki
• USB og SD korta spilun
• AUX tengi fyrir önnur tæki
• Litljós / „disco“ ljós fyrir stemningu
• Fjarstýring fylgir
• Endurhlaðanleg rafhlaða




...